Stormur stefnir á landið

Búist er við stormi suðvestantil undir hádegið, Mynd úr safni.
Búist er við stormi suðvestantil undir hádegið, Mynd úr safni. mbl.is/Rax

Óveðurslægð stefnir nú á Snæfellsnes og mun veður versna mjög suðvestanlands undir hádegið. Ganga mun á með stormi, 20-25 m/s með dimmum éljum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Varað er við því að skyggni verður takmarkað í hryðjunum og skafrenningur þegar á líður.

Á vegum vestanlands, s.s. á Vatnaleið, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði, verður einnig mjög hvasst frá því skömmu eftir hádegi. Skyggni verður mjög takmarkað í hryðjunum og skafrenningur þegar frá líður. Það á að lagast mikið í kvöld

Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eða krapasnjór er í uppsveitum á Suðurlandi. Hálka er á Mosfellsheiði en þungfært á Lyngdalsheiði.

Ófært er á Fróðárheiði og í Svínadal en flughálka er á Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Þæfingsfærð er á Heydal en þungfært frá Arnarstapa að Fróðárheiði. Hálka eða krapasnjór er á öðrum leiðum á Vesturlandi

Á Vestfjörðum er ófært á flestöllum heiðum þó er þungfært á Gemlufallsheiði og á Þröskuldum en snjóþekja á Klettsháls. Flughálka er í Súgandafirði. Annars er hálka eða snjóþekja. Raknadalshlíð er lokuð vegna snjóflóðs og beðið með mokstur.

Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir eða krapasnjór á flestum leiðum.
Ófært er á Hálsum og flughálka í Öxnadal og á Möðrudalsöræfum en hálka eða krapasnjór á öðrum leiðum. Snjóþekja og éljagangur er á Öxnadalsheiði.

Á Austurlandi er flughálka á öllum leiðum í kringum Egilsstaði en hálka á Fjarðarheiði, Fagradal og Oddsskarði.

Hálkublettir eða krapasnjór er með suðausturströndinni.

Veðurspá 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert