329.040 bjuggu á Íslandi

Í lok ársins 2014 bjuggu 329.040 manns á Íslandi, 165.150 karlar og 163.890 konur. Landsmönnum fjölgaði um 870 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 211.230 manns en 117.820 utan höfuðborgarsvæðis. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.
 
Á 4. ársfjórðungi 2014 fæddust 1.080 börn, en 520 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 320 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 160 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 480 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 380 íslenskir ríkisborgarar af 630 alls. Af þeim 610 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 190 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (130) og Svíþjóð (70), samtals 330 manns af 470. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 400 til landsins af alls 1.080 erlendum innflytjendum. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 24.230 erlendir ríkisborgarar á Íslandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert