Enginn grundvöllur til samninga

Samtök atvinnulífsins.
Samtök atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins segja að enginn grundvöllur sé til viðræðna við Starfsgreinasambandið um endurnýjun kjarasamninga á grundvelli þeirrar kröfugerðar sem SGS afhenti SA í dag. Í henni sé ekkert mat lagt á áhrif krafnanna á verðbólgu, vexti, verðtryggðar skuldir heimila og fyrirtækja, kaupmátt launa og atvinnuleysi.

Eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag afhenti SGS afhenti í dag SA kröfugerð vegna kjaraviðræðna framundan vegna 16 aðildarfélaga þess annarra en félaga innan Flóabandalagsins (Eflingar, Hlífar og VSFK). 

„Kröfur SGS gera ráð fyrir að lágmarki 50% hækkun launataxta á næstu þremur árum, sérstökum launahækkanir til viðbótar í gjaldeyrisskapandi greinum (fiskvinnslu og ferðaþjónustu), viðbótarhækkunum vegna reynslu og menntunar, hækkana eingreiðslna og vaktaálaga, auk annarra krafna einstakra aðildarfélaga.

Það er mat SA að enginn grundvöllur sé til viðræðna við Starfsgreinasambandið um endurnýjun kjarasamninga á grundvelli kröfugerðarinnar. Í henni er ekkert mat lagt á áhrif tugaprósenta launahækkana á verðbólgu, vexti, verðtryggðar skuldir heimila og fyrirtækja, kaupmátt launa og atvinnuleysi.  SGS ber skylda til að leggja mat á áhrif fyrrgreindra launahækkana  gangi þær yfir allan vinnumarkaðinn.

Ljóst er að kjarasamningar í takti við kröfugerð SGS yrðu fordæmi fyrir aðra kjarasamninga. Hækkanir sem SGS fer fram á myndu ná til alls þorra félagsmanna ASÍ og síðan ganga yfir vinnumarkaðinn allan. Sú leið sem SGS vill fara hefur ítrekað verið reynd á Íslandi með afleitum árangri. Ávinningur launafólks af tugprósenta launahækkunum hefur verið lítill sem enginn, því sambærileg verðbólga hefur fylgt í kjölfarið og gengisfelling krónunnar. Tjón efnahagslífsins af þessari leið hefur verið mikið,“ segir í tilkynningu frá SA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert