„Síðustu ár hefur verið minni þörf fyrir að setja kynjakvóta í keppni Morfís en í Gettu Betur.“
Þetta segir Katrín Sigríður Steingrímsdóttir, formaður Morfís, í Morgunblaðinu í dag, en í ár er fyrsta árið sem keppt er undir kynjakvóta í spurningakeppni framhaldsskólana Gettu Betur.
Morfís er ræðukeppni framhaldsskólana og segir Katrín að gagnrýnisraddirnar um þátttöku kvenna í keppninni hafi þagnað.