Þrír á slysadeild eftir árekstur

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is/Helgi Bjarnason

Þrennt var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir árekstur tveggja bifreiða í Grindavík um helgina.

Atvikið bar að með þeim hætti að bifreið var ekið yfir biðskyldu inn á Ægisgötu með þeim afleiðingum að hún rakst á aðra bifreið sem ekið var eftir Hafnargötu.

Ökumaður og tveir farþegar fyrrgreindu bifreiðarinnar voru fluttir til skoðunar hjá lækni, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert