Sauðfjárræktarfélögin í Strandasýslu sendu Sigurði Inga Jóhannssyni, landbúnaðar- og umhverfisráðherra, neyðarkall í maí í fyrra.
Tilefnið var að þann 1. júlí 2014 voru liðin 20 ár frá því að ríkisvaldið alfriðaði refi á 580 ferkílómetra svæði á Hornströndum í óþökk nágrannabyggða og án undangenginna rannsókna á lífríki svæðisins. Ekki hefur enn borist svar við neyðarkallinu, að sögn Guðbrands Sverrissonar, formanns Sauðfjárræktarfélags Kaldrananeshrepps.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að meðal annars var skorað á ráðherrann „að koma í veg fyrir enn hrikalegra umhverfisslys en þegar er orðið með því að aflétta friðun refa á Hornströndum og koma skipulagi á veiðar þar“.