Ók á umferðarmerki

mbl.is/Þórður Arnar

Umferðaróhapp varð á Reykjanesbraut við N1 Lækjargötu í Hafnarfirði um klukkan hálf fimm í dag. Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var bifreið ekið á umferðarmerki og ökumaður fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á Landsspítalanum eru meiðsli ökumannsins minniháttar.

Í dagbók lögreglu segir einnig frá því að um klukkan hálf sex hafi ökumaður verið stöðvaður vegna gruns um akrstur undir áhrifum fíkniefna en honum var sleppt að lokinni blóðtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert