Persónuvernd fær tölvupóstinn

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri. mbl.is/Eggert

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir það ekki eiga við rök að styðjast að tölvupóstur með greinargerð sem hún sendi aðstoðarmanni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, í nóvember 2013, hefði ekki fundist. 

Hún segir að tölvupósturinn verði afhentur Persónuvernd eigi síðar en nk. föstudag. 

Kjarninn greindi frá því í dag, að tölvupóstur sem Sigríður Björk, sem var þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagðist hafa sent Gísla Frey Valdórssyni, þáverandi aðstoðarmanni Hönnu Birnu þann 20. nóvember árið 2013 með greinargerð um hælisleitandann Tony Omos, hefði hvorki fundist í innanríkisráðuneytinu né hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Í frétt Kjarnans kom fram, að þetta hefði komið fram í svörum ráðuneytisins og lögreglustjóraembættisins við fyrirspurn Persónuverndar, sem hefði óskað eftir að fá umræddan töluvpóst afhentan.

Sigríður Björk hefur sent fjölmiðlum yfirlýsingu vegna málsins, en hún er svohljóðandi:

„Tölvupóstur með greinargerð sem þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum sendi þáverandi aðstoðarmanni innanríkisráðherra 20. nóvember 2013, er vistaður á póstþjóni lögreglunnar. Tölvupósturinn verður meðal þeirra gagna sem undirrituð afhendir Persónuvernd eigi síðar en nk. föstudag, 30. janúar.

Fréttir þess efnist að umræddur tölvupóstur finnist ekki, eiga því ekki við rök að styðjast.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert