Spá stormi norðvestanlands annað kvöld

Vindaspá á landinu kl. 22 annað kvöld. Eins og sjá …
Vindaspá á landinu kl. 22 annað kvöld. Eins og sjá má er búist við stormi um landið norðvestanvert. mynd/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér viðvörun því búist er við stormi (meira en 20 metrum á sekúndu) norðvestanlands annað kvöld.

Veðurhorfur á landinu:

Suðvestan 5-10 m/s og víða él í kvöld. Snjókoma eða él á Norðurlandi og Vestfjörðum á morgun, annars hægur vindur og úrkomulítið. Frost 0 til 10 stig. Gengur í hvassa norðaustanátt með snjókomu fyrir norðan og austan síðdegis og annað kvöld, fyrst norðvestantil.

Heimasíða Veðurstofunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert