Vill að Hanna Birna segi af sér

Elín Hirst.
Elín Hirst. mbl.is

Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir á facebooksíðu sinni í dag að ekki sé ráðlegt að Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, setjist aftur á þing.

Telur Elín jafnframt að Hanna Birna eigi að láta af embætti varaformanns flokksins. Segir þingkonan að hún hafi komist að þessari niðurstöðu í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis um lekamálið. 

„Málið er afar alvarlegt að mínum dómi og ég tel að Hanna Birna hafi gert afdrifarík mistök, en þau veigamestu voru afskipti hennar af rannsókn málsins eins og fjallað er um í áliti umboðsmanns,“ segir Elín.

Segir hún þó að lokum að mikilvægast sé að stjórnmála- og ráðamenn landsins „dragi lærdóm af málinu og axli ábyrgð á mistökum sem þessum gagnvart umbjóðendum sínum, almenningi í landinu“.

Færsla Elínar síðan í morgun.
Færsla Elínar síðan í morgun. Skjáskot af Facebook
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert