Umferðarslys varð á gatnamótum Höfðabakka og Stórhöfða um klukkan 12:20 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði voru tveir fluttir á slysadeild til aðhlynningar.
Störfum slökkviliðs á vettvangi er nú lokið en tækjabíll fór á staðinn til þess að þrífa upp olíu. Orsök árekstursins liggur ekki fyrir að svo stöddu.