Grunaðir um akstur undir áhrifum

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu á öðrum tímanum í nótt.

Einn þeirra var stöðvaður í austurborginni grunaður um ölvun við akstur. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu var hann laus að lokinni blóðtöku.

Nokkrum mínútum fyrr hafði ökumaður verið stöðvaður annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn heimilaði leit í bifreiðinni og fannst lítilræði af ætluðum fíkniefnum. Var málið afgreitt á vettvangi og maðurinn laus að lokinni blóðtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert