Flestir treysta Pírötum til að gera upp gamla tíma

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata. mbl.is/Kristinn

MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða fjóra málaflokka sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást við á næstu mánuðum. Þeir málaflokkar sem um ræðir eru innflytjendamál, samningar um aðild að Evrópusambandinu, endurskoðun á stjórnarskránni, og rannsókn á tildrögum bankahrunsins.

Þó þeim fækki verulega sem telja Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða innflytjendamálin er flokkurinn enn sá sem flestir treysta fyrir málaflokknum.

Þrátt fyrir að flestir töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í innflytjendamálum hefur þeim fækkað nokkuð frá því í fyrra sem töldu flokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 25,6% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn, borið saman við 32,0% í janúar 2014 og 41,4% í desember 2012.

Flestir virðast treysta Pírötum til að gera upp gamla tíma. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 24,9% að Píratar væru best til þess fallnir að leiða rannsókn á tildrögum bankahrunsins. Til samanburðar töldu 8,8% Framsóknarflokkurinn bestan til þess fallinn.

Festir töldu að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða samninga um aðild að Evrópusambandinu. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 39,0% töldu að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða samninga um aðild að Evrópusambandinu.

Spurt var: Eftirfarandi eru nokkrir málaflokkar sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást við á næstu mánuðum. Hvaða stjórnmálaflokkur, af eftirfarandi, telur þú að væri best til þess fallinn að leiða hvern málaflokk?

Svarmöguleikar voru: Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstri græn, Björt framtíð, Píratar. Samtals tóku 58,3% afstöðu til spurningarinnar (að hluta til eða í heild).

18,5% þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í innflytjendamálum og 13,2% þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í innflytjendamálum.

Þeim fækkaði nokkuð sem töldu Framsóknarflokkurinn bestan til þess fallin að leiða samninga við Evrópusambandið. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 12,4%  Framsóknarflokkinn best til þess fallinn að leiða mála flokkinn, borið saman við 17,3% í janúar 2014.

Nokkur hluti stuðningsfólks annarra flokka taldi Samfylkinguna besta til þess fallna að leiða samninga um aðild að Evrópusambandinu. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 45,3% þeirra sem studdu Vinstri-græn að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða málaflokkinn, 38,7% þeirra sem studdu Bjarta framtíð, 37,4% þeirra sem studdu Pírata, 12,9% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn og 8,8% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn töldu að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða samninga um aðild að Evrópusambandinu.

Píratar leiði endurskoðun á stjórnarskrá

Þeim fjölgaði sem töldu Pírata besta til þess fallna að leiða endurskoðun á stjórnarskránni. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 19,5% Pírata besta til þess fallna að leiða málaflokkinn, borið saman við 10,4% í janúar 2013.

Nokkur hluti stuðningsfólks annarra flokka taldi Pírata besta til þess fallna að leiða rannsókn á tildrögum bankahrunsins. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 28,6% þeirra sem studdu Bjarta framtíð að Píratar væru bestir til þess fallnir að leiða málaflokkinn, 19,5% þeirra sem studdu Vinstri-græn, 17,0% þeirra sem studdu Samfylkinguna, 9,2% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn og 7,0% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn töldu að Píratar væru bestir til þess fallnir að leiða samninga um aðild að Evrópusambandinu.

Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára  og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 933 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 9.-14. janúar 2014

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert