Ófeigur, Snorri og Bryndís verðlaunuð

Ófeigur Sigurðsson, Snorri Baldursson og Bryndís Björgvinsdóttir hlutu í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin 2014, en tilkynnt var um það nú á fimmta tímanum. Ófeigur fyrir bókina Öræfi í flokki fagurbókmennta, Snorri fyrir Lífríki Íslands í flokki fræðirita og rita almenns efnis og Bryndís fyrir Hafnfirðingarbrandarann í flokki barna- og ungmennabóka.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti samkomuna nú síðdegis en því næst flutti Egill Örn Jóhannsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu og kynnti tilnefnda höfunda. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. 

Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd var skipuð þeim Helgu Ferdinandsdóttur, Hildigunni Sverrisdóttur, Tyrfingi Tyrfingssyni og Árna Sigurjónssyni, sem var jafnframt var formaður nefndarinnar.

Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk. Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.

Valdimar Guðmundsson flutti tvö lög.

Fimmtán bækur tilnefndar í þremur flokkum

Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki barna- og ungmennabóka:

  • Ármann Jakobsson: Síðasti galdrameistarinn JPV útgáfa
  • Bryndís Björgvinsdóttir: Hafnfirðingabrandarinn Vaka-Helgafell
  • Eva Þengilsdóttir: Nála – riddarasaga Bókaútgáfan Salka
  • Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn: Fuglaþrugl og naflakrafl Vaka-Helgafell
  • Þórarinn Leifsson: Maðurinn sem hataði börn Mál og menning

Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fagurbókmennta:

  • Guðbergur Bergsson: Þrír sneru aftur JPV útgáfa
  • Gyrðir Elíasson: Koparakur Dimma
  • Kristín Eiríksdóttir: Kok JPV útgáfa
  • Ófeigur Sigurðsson: Öræfi Mál og menning
  • Þórdís Gísladóttir: Velúr Bjartur

Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis:

  • Björg Guðrún Gísladóttir: Hljóðin í nóttinni Veröld
  • Eggert Þór Bernharðsson: Sveitin í sálinni – Búskapur og ræktun í Reykjavík 1930-1970 JPV útgáfa
  • Pétur H. Ármannsson ritstýrði: Gunnlaugur Halldórsson – Arkitekt Hið íslenska bókmenntafélag
  • Snorri Baldursson: Lífríki Íslands – Vistkerfi lands og sjávar Forlagið og Bókaútgáfan Opna
  • Sveinn Yngvi Egilsson: Náttúra ljóðsins – Umhverfi íslenskra skálda Háskólaútgáfan

Verðlaunin fyrst afhent árið 1

Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, fagurbækur annars vegar og fræðibækur og rit almenns efnis hins vegar. Þannig hafa verðlaunin haldist óbreytt þar til ársins 2013 að við bætist flokkur barna- og ungmennabóka.

Tilnefningar eru kynntar þann 1. desember ár hvert og verðlaunin síðan veitt síðla janúar eða í upphafi febrúar. Óháðar tilnefninganefndir, skipaðar þremur dómbærum fulltrúum hver, velja þær fimm bækur í hverjum flokki sem helst þykja skara fram úr. Lokaval er í höndum formanna nefndanna þriggja og forsetaskipaðs dómnefndarformanns. Velja þeir eina bók úr hverjum flokki þannig að þrjár bækur hljóta á endanum Íslensku bókmenntaverðlaunin. Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna sama ár og þær koma út, hvort sem þeir eru í Félagi íslenskra bókaútgefenda eða ekki, og greiða fyrir það hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir höfund hvers verðlaunaverks. Íslensku bókmenntaverðlaunin 2014 hlutu Sjón, Sigurjón B. Sigurðsson fyrir Mánastein, Guðbjörg Kristjánsdóttir fyrir Íslensku teiknibókina og Andri Snær Magnason fyrir Tímakistuna.

Bókmenntaverðlaunin fyrst afhent árið 1990

Þeir sem áður hafa hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin eru:

1989 Stefán Hörður Grímsson
1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson
1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson
1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson
1994 Silja Aðalsteinsdóttir og Vigdís Grímsdóttir
1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead
1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason
1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson
1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson
2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson
2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson,
2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson
2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson
2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Jóhannessen, Silja Aðalsteinsdóttir, Eiríkur Þorláksson
2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason
2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson
2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson
2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson
2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson
2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson
2012 Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson
2013 Sjón, Sigurjón B. Sigurðsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir og Andri Snær Magnason

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert