Sá fordæmalausi atburður átti sér stað á miðvikudag þegar Áslaug Friðriksdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokks, tók sæti á Alþingi að börn fjögurra fyrrverandi ráðherra sátu saman í þingsal.
Þetta eru þau Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformður vinstri grænna, Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, auk áðurnefndrar Áslaugar.
Faðir Guðmundar Steingrímssonar, Steingrímur Hermannsson, sat á Alþingi frá árinu 1971-1994 fyrir Framsóknarflokkinn. Sinnti hann fjórum sinnum ráðherraembætti og var meðal annars tvívegis forsætisráðherra, frá 1983-1987 og 1988-1991 en í millitíðinni var hann utanríkisráðherra í eitt ár.
Faðir Svandísar Svavarsdóttur, Svavar Gestsson, sat á þingi fyrir Alþýðubandalagið og Samfylkinguna frá 1978-1999. Hann sinnti þrívegis ráðherraembætti, síðast sem menntamálaráðherra á árunum 1988-1991. Þess má geta að Svandísar hefur ein fjórmenninganna sinnt ráðherraembætti. Hún var umhverfisráðherra 2009-2013.
Bjarni Benediktsson, faðir Valgerðar Bjarnadóttur, sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1942-1946 og 1949-1970. Hann sinnti átta sinnum ráðherraembætti og þar á meðal var hann forsætisráðherra árið 1961 og 1963-1970.
Þá var Friðrik Sophusson, faðir Áslaugar Friðriksdóttur, þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1978-1979 og 1979-1998. Tvívegis var hann ráðherra. Síðast fjármálaráðherra á árunum 1991-1998.
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, fullyrðir að aldrei áður hafi fjögur ráðherrabörn setið í einu á þingi. „Við þetta má svo bæta að Sigrún Magnúsdóttir er eiginkona Páls Péturssonar, fyrrverandi ráðherra. Þá sat Gunnlaugur M. Sigmundsson, pabbi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, á þingi,“ segir Helgi.