Enginn var með allar tölur réttar í Lottó útdrætti helgarinnar og heldur ekki í Jókernum.
Hinsvegar voru tveir með fjórar tölur og bónustölu rétta og fá þeir hvor um sig 342.410 krónur. Annar miðinn var í áskrift en hinn var seldur í Olís á Neskaupstað og er því eflaust kátt í koti einu fyrir austan þessa laugardagsnótt.
Fjórir fengu annan vinning í Jóker, þar af tveir í áskrift, einn í Bíldudal og sá fjórði í Reykjavík. Fá vinningshafarnir 100 þúsund krónur í vasann fyrir vikið.