Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir hinum 17 ára Þorbirni Degi Jósepssyni.
Þorbjörn er 180 sentímetrar á hæð og um 80 kg. Hann er með stutt brúnt hár og með brún augu. Þorbjörn var í svartri úlpu og í strigaskóm, en ekki er vitað hvernig þeir eru á litinn.
Þorbjörn fór frá heimili sínu í dag klukkan 13:00 og skilaði sér ekki þangað sem hans var vænst seinnipartinn í dag.
Talið er að Þorbjörn haldi til á Reykjavíkursvæðinu.
Þeir sem vita um ferðir Þorbjörns eru vinsamlegast beðnir um að láta lögregluna á Suðurnesjum vita í síma 444-2299.
UPPFÆRT klukkan 13 þann 2. febrúar
Þorbjörn Dagur er kominn fram, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.