Strætó harmar hörmulegt atvik

Málið er til rannsóknar og er starfsfólki Strætó bs. afar …
Málið er til rannsóknar og er starfsfólki Strætó bs. afar brugðið. Styrmir Kári

Strætó bs. harmar að 18 ára þroskaskert stúlka hafi verið skilin eftir í bíl fyrirtækisins og er stúlkan og fjölskylda hennar beðin afsökunar. Í tilkynningu segir að málið sé til rannsóknar og allt verði gert til að komast í botn í því. 

mbl.is greindi frá málinu rétt eftir klukkan níu í kvöld. Lýst var eftir Ólöfu Þorbjörgu Pétursdóttur og fannst hún í læstum bíl á vegum ferðaþjónustu fatlaðra.  

mbl.is. hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Smára Ólafsson, sviðsstjóra akstursþjónustu Strætó bs. í kvöld en án árangurs. 

Tilkynningin í heild sinni:

Í dag átti sér hörmulegt atvik þar sem ung stúlka varð eftir í bíl fyrirtækisins. Við hörmum þetta atvik meira en orð geta lýst og viljum biðja stúlkuna og fjölskyldu hennar afsökunar. Málið er nú til rannsóknar og verður allt gert til að komast til botns í því.

Aftur vil ég taka það fram að okkur starfsfólki fyrirtækisins er afar brugðið yfir því að þetta skyldi gerast. 

Smári Ólafsson, sviðsstjóri akstursþjónustu Strætó bs. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert