Vilja endurgreiða íþróttafélögum VSK

Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi.
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi. mbl.is/Eggert

Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi um endurgreiðslu virðisaukaskatts til íþróttafélagaÍ greinargerð frumvarpsins segir að frumvarpið miði að því að breyta virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar.

Lagt er til að íþrótta- og ungmennafélögum verði endurgreiddur allur virðisaukaskattur sem greiddur hefur verið af vinnu manna við nýbyggingu, endurbyggingu og viðhaldi við íþróttamannvirki, en einnig af þjónustu vegna hönnunar, eftirlits eða viðhalds þeirra.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að þjónusta og vörusala sem stunduð er til að afla fjár fyrir hefðbundna starfsemi íþróttafélaga verði undanþegnar virðisaukaskatti. Tímabilið í frumvarpinu er eitt ár, frá 1. janúar 2015 til 1. janúar 2016.

„Sjálfboðaliðastarf hefur lengi verið grunnurinn að öflugu íþróttastarfi á Íslandi. Verði frumvarpið að lögum mun það stórefla allt sjálfboðaliðastarf innan íþróttahreyfingarinnar hér á landi og auðvelda íþróttafélögum alla uppbyggingu íþróttamannvirkja,“ segir í tilkynningu um frumvarpið.

Í frumvarpinu er lögð fram breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Meðflutningsmenn eru Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir úr Framsóknarflokknum og Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 

Á síðasta þingi var lögð fram þingsályktunartillaga um endurskoðun á virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar og stóðu sömu stjórnarþingmenn að baki henni.  

Frumvarpið er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að leggja áherslu á mikilvægi íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert