Föðurnum sleppt eftir skýrslutöku

mbl.is/Hjörtur

Manni á fimm­tugs­aldri sem var hand­tek­inn í Hafnar­f­irði í nótt eft­ir að hafa ráðist á son sinn sem er á ung­lings­aldri hefur verið sleppt. Að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, var manninum sleppt eftir skýrslutöku í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Margeiri er málið enn í rannsókn, en það verður unnið í samvinnu við félagsþjónustu. Barnaverndaryfirvöld voru kölluð til vegna málsins í nótt enda um heimilisofbeldi að ræða gagnvart barni.

Maðurinn gisti fangageymslur í nótt en sá sem fyrir árásinni varð var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en hann var skorinn á höndum. Fleiri börn voru á heim­il­inu þegar lík­ams­árás­in átti sér stað.

Frétt mbl.is: Réðst á son sinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert