Fordæmir ákvörðun meirihlutans

Reykjavíkurflugvöllur
Reykjavíkurflugvöllur Sigurður Bogi Sævarsson

Stjórn Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík fordæmir þá ákvörðun meirihluta borgarstjórnar að staðfesta samkomulag við Valsmenn ehf. um uppbyggingu íbúðalóða á þeim hluta Hlíðarendasvæðisins sem liggur að neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar.

„Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson, situr í nefnd á vegum innanríkisráðuneytisins sem gjarnan er kennd við Rögnu Árnadóttur. Nefnd þessi hefur það hlutverk að finna framtíðarlausn á staðsetningu Reykjavíkurflugvallar, mikil sátt hefur ríkt um störf nefndarinnar og ein af þeim lausnum sem hún vinnur með er að flugvöllurinn í heild sinni verði áfram á sama stað. Borgarstjóri hefur nú einhliða rofið þessa sátt án nokkurs tilefnis, eftir að hafa leynt og ljóst unnið gegn störfum nefndarinnar frá upphafi. Rétt er að spyrja hvort borgarstjóri sé hæfur til að sitja áfram í þessari nefnd eftir atburði gærdagsins og sömuleiðis hvort áframhaldandi seta hans í nefndinni sé ekki til þess fallin að draga verulega úr trúverðugleika hennar.

Deiliskipulagið sem heimilar framangreindar framkvæmdir Valsmanna ehf. á Hlíðarendasvæðinu  bíður enn samþykkis í innanríkisráðuneytinu. Stjórn Varðar skorar á innanríkisráðherra að synja deiliskipulaginu fyrir Hlíðarendasvæðið sem allra fyrst og standa þannig vörð um flugöryggi landsmanna allra, sem og sjálfsagðan aðgang þeirra að heilbrigðisþjónustu í formi sjúkraflugs,“ segir í yfirlýsingu Varðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert