Laxinn tekur forystu í fiskeldinu

Slátrun hjá Fjarðalaxi á Vestfjörðum.
Slátrun hjá Fjarðalaxi á Vestfjörðum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Framleiðsla á laxi jókst um tæp 1.000 tonn á síðasta ári, fór úr 3.000 tonnum í tæp 4.000 tonn. Fjarðalax á Vestfjörðum stendur undir meginhluta aukningarinnar, eins og undanfarin ár.

Laxinn hefur nú tekið við af bleikju sem mikilvægasti eldisfiskurinn og með sama áframhaldi nær laxeldið sömu hæðum í framleiðslu á allra næstu árum og var í síðustu laxeldisbylgju á árunum 2004 til 2006.

Laxeldisfyrirtækin eru að bæta við og ný að hefja slátrun á þessu ári þannig að útlit er fyrir aukningu í ár, að því er fram kemur í fréttaskýringu um fiskeldið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert