Rússneskar sprengjuvélar við Ísland

Bresk Typhoon orrustuþota og rússnesk sprengjuflugvél af gerðinni Tupolev 95.
Bresk Typhoon orrustuþota og rússnesk sprengjuflugvél af gerðinni Tupolev 95. Ljósmynd/Breska varnarmálaráðuneytið

Tvær langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar af gerðinni Tupolev Tu-95 flugu inn í loftrýmiseftirlitssvæði NATO í nágrenni Íslands upp úr hádegi í gær. Rússneskar herflugvélar hafa ekki flogið svo nærri landinu frá brotthvarfi bandaríska hersins, en sprengjuvélarnar flugu tvisvar framhjá landinu.

Á vefsvæði Landhelgisgæslunnar segir að þær hafi verið í 26 sjómílna fjarlægð frá Stokksnesi þegar næst var.

„Fylgst var með vélunum í loftvarnaeftirlitskerfi NATO hér á landi sem vinnur úr gögnum frá ratsjárkerfi sem Landhelgisgæslan rekur og staðsett er í hverjum landsfjórðungi. Vélarnar komu inn í loftrýmiseftirlitssvæðið austur af Íslandi og héldu í suðurátt að Bretlandi og Írlandi. Þar voru þær auðkenndar af breskum orrustuþotum en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli (NATO Control and Reporting Center) hafði eftirlit með fluginu þann tíma sem vélarnar voru hér við land og tryggði flugöryggi í samvinnu við aðgerðastjórnstöð NATO (Combined Air Operation Center) í Uedem í Þýskalandi og flugleiðsögu Isavia. 

„Birnirnir“ tveir sneru við síðdegis norður af Bretlandi og flugu sem leið lá aftur að Íslandi, meðfram suðurströnd Íslands og austur með landinu þar sem þær tóku beygju upp með Austurlandi og flugu loks aftur í norður í átt að Rússlandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert