Flugmenn ósáttir vegna Reykjavíkurflugvallar

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is/Árni Sæberg

Félag íslenskra atvinnuflugmanna harmar vinnubrögð Reykjavíkurborgar, Isavia og annarra hlutaðeigandi aðila varðandi framtíð Reykjavíkurflugvallar. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið hefur sent frá sér.

„Það er krafa FÍA að óháður, viðurkenndur, erlendur aðili verði fenginn til að vinna nýtt mat á notkunarstuðli Reykjavíkurflugvallar og að öllum framkvæmdum á Valssvæðinu verði frestað þar til Rögnunefndin hefur lokið störfum, og varanleg lausn fundin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert