36,4% styðja ríkisstjórnina

Ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands. mbl.is/Ómar

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 36,4% í nýrri könnun MMR en fylgið mældist 34,1% í síðustu mælingu, sem sem lauk þann 29. janúar sl. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 25,5%. Næst á eftir kemur Björt framtíð með 15% stuðning.

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 13. til 19. febrúar 2015.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 36,4% en mældist 34,1% í síðustu mælingu og 34,8% um miðjan janúar sl. sem llauk 14. janúar.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,5%, borið saman við 24,9% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 15,0%, borið saman við 16,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,5%, borið saman við 14,7% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældis nú 13,1%, borið saman við 12,7% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 12,9%, borið saman við 12,0% í síðustu könnun of fylgi Pírata mældist nú 12,8%, borið saman við 14,0% í siðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 

Könnunin var framkvæmd dagana 13. til 19. febrúar 2015 og var heildarfjöldi svarenda 975 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert