Eldgosið að verða hálfs árs

Eldgosið í Holuhrauni hefur bráðum staðið yfir í hálft ár. Verulega hefur dregið úr hraunflæði í Holuhrauni og hægt á sighraða öskju Bárðarbungu. Þá dregur áfram úr jarðskjálftavirkni Bárðarbungu þó hún teljist enn mikil. Ekki hefur mælst skjálfti yfir fimm að stærð frá 8. janúar.

Þá hefur sést mjög illa til gosstöðvanna í Holuhrauni síðustu daga vegna veðurs.

Þetta kom fram á fundi vísindamannaráðs almannavarna í dag.

Þá segir, að stærsti skjálftinn frá því á föstudag hafi mælst vera 3,7 að stærð á laugardag kl. 15:20. Tveir aðrir skjálftar mældust stærri en 3,0 á tímabilinu.

Alls hafa um 60 skjálftar mælst í Bárðarbungu frá því á föstudag. Tveir djúpir skjálftar mældust um 18 km suðaustur af Bárðarbungu. Sá fyrri þann 20. febrúar kl. 02:50 á um 19 km dýpi og sá síðari þann 21. febrúar kl. 21:55 á um 16 km dýpi. 

Þá segir, að í kvikuganginum hafi mælst um 90 skjálftar frá því á föstudag. Þeir stærstu mældust 1,6 að stærð. Tekið er fram, að það sé mjög háð veðri hve margir smáskjálftar mælast.

Sig öskju Bárðarbungu er nú minna en 2 cm á dag. Taka verður tillit til ísskriðs inn að miðju öskjunnar þegar gögn úr GPS tæki eru skoðuð.

GPS-mælingar við Vatnajökul sýna áframhaldandi hægar færslur í átt að Bárðarbungu, í samræmi við að kvika flæði enn undan bungunni.

Við Tungnafellsjökul voru 2 skjálftar, báðir minni en tveir að stærð. Við Öskju og Herðubreið mældust á fjórða tug skjálfta og voru þeir allir minni en tveir að stærð.

Í dag má búast við gasmengun suðvestur og vestur af Holuhrauni. Á morgun er líkleg að gasmengun dreifist norðvestur af eldstöðvunum.

Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvinduna:

  • Gosið í Holuhrauni heldur áfram þar til öskjusig í Bárðarbungu hættir. Gosið gæti hætt á næstu vikum en ekki er hægt að útiloka að lítið gos geti haldið áfram í marga mánuði enn.
  • Gosvirkni færist til suðurs undir Dyngjujökul og veldur jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annars staðar undir jöklinum. Ef slíkt gos yrði langvinnt gæti það breyst í hraungos. 
  • Gos í öskju Bárðarbungu. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Öskufall gæti orðið nokkurt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert