63 sóttu um 5 stöður sviðsstjóra

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Á áttunda tug umsókna bárust Reykjanesbæ um störf sviðsstjóra og hafnarstjóra hjá sveitarfélaginu. Flestir sóttu í starf sviðsstjóra stjórnsýslusviðs eða átján og tólf sóttu um störf sviðsstjóra fjármálasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs.

Um er að ræða fimm stöður sviðsstjóra og bárust alls 63 umsóknir um þær. Eins var auglýst staða hafnarstjóra og bárust tíu umsóknir um þá stöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert