Enn skelfur en skjálftarnir minni

Síðastliðinn sólarhring mældust á þriðja tug jarðskjálfta í Bárðarbungu. Stærstu skjálftarnir voru um 1,7 að stærð.

Í kvikuganginum mældust um 20 jarðskjálftar, allir minni en 1,5 að stærð. Fáeinir skjálftar voru við Herðubreið og Herðubreiðartögl og voru þeir allir minni en 2  stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert