Skíðamennirnir fundnir

TL - Líf þyrla landhelgisgæslunar
TL - Líf þyrla landhelgisgæslunar mbl.is/Árni Sæberg

Björgunarsveitir fundu nú fyrir skömmu tvo menn sem leitað var að norðan við Mýrdalsjökul. Voru þeir í ágætu ásigkomulagi en þó orðnir nokkuð hraktir eftir að hafa misst tjald og búnað í aftakaveðri. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til leitar og kom hún á svæðið í þann mund er björgunarsveitir fundu mennina. Mun hún flytja þá til byggða. Um 40 björgunarmenn tóku þátt í aðgerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert