Yfirlýsing Vodafone leiðir hið rétta í ljós

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Gögn frá Vodafone til Hafnarfjarðarbæjar tóku ekki til símanúmera þar sem þak er á greiðsluþátttöku bæjarins og náðu því til mun færri símanúmera en áður hefur komið fram í fjölmiðlum. Gögnin náðu einungis til símanúmera sem Hafnarfjarðarbær er áskrifandi og greiðandi að fullu.

Í þessu felst að gögnin tóku ekki til númera sem bærinn greiðir að hluta en það er sú regla sem gildir almennt um farsíma starfsmanna og kjörinna fulltrúa. „Í framhaldi af kvörtun til Persónuverndar kom í ljós, samkvæmt upplýsingum frá Vodafone, að gögnin voru mun afmarkaðri en áður hefur komið fram. Þar sem þeim hafði verið eytt var Hafnarfjarðarbæ ekki unnt að ganga úr skugga um það en yfirlýsing Vodafone leiðir hið rétta í ljós,“ segir í tilkynningu frá bænum.

Frétt mbl.is: Hafnarfjarðarbær kannaði símagögn

Í yfirlýsingu Vodafone segir að það sé staðfest að þau símtalagögn sem send voru til Hafnarfjarðarbæjar voru einungis gögn þar sem Hafnarfjarðarbær er áskrifandi og greiðandi að fullu. Jafnframt sé það staðfest að fyrirkomulag við sendingu gagnanna var í fullu samræmi við verklagsreglur Fjarskipta hf. (Vodafone) þar sem fyllsta öryggis var gætt við meðhöndlun og afhendingu gagnanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert