Austurvegur á Selfossi nú lokaður

Austurvegur á Selfossi er nú lokaður.
Austurvegur á Selfossi er nú lokaður. mbl.is/Malín Brand

Hringvegi 1 í gegnum Selfoss, Austurvegi, var lokað formlega í gær vegna vegaframkvæmda.

Umferðinni er beint um aðrar smærri götur í bænum á meðan gangandi umferð er heimil um vinnusvæðið. Skipta á um jarðveg og lagnir og útbúa nýjar stéttir og miðstæði við ofanverða Tryggvagötu sem liggur þvert á Austurveginn í miðbæ Selfoss.

Verktakafyrirtækið Borgarverk sér um framkvæmdina og á að skila verkinu í ágúst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert