Snjóflóð féll á skíðasvæðinu við Bláfjöll fyrr í dag. Er svæðið lokað í dag og fáir á ferli. Að sögn Magnúsar Árnasonar, forstöðumanns skíðasvæðisins var flóðið þó töluvert.
„Það var nokkur hundruð metrar á breidd og þrír metrar á þykkt,“ segir Magnús í samtali við mbl.is. „Sjúkragæslumaðurinn okkar, sem hefur m.a. það hlutverk að fylgjast með snjóflóðum, var að keyra niður Eldborgargilið á vélsleða þegar hann heyrir drunur og sá flóðið. En hann náði að keyra undan því.“
Að sögn Magnúsar er talið að vélsleðinn hafi komið flóðinu af stað en ekki hefur verið skíðað í nokkur ár þar sem flóðið féll. „En það breytir því ekki að það er innan okkar svæðis,“ segir Magnús. „Fjallaskíðafólk hefur til dæmis gaman að því að fara þarna upp.“
Hann segir að vel verði fylgst með svæðinu áfram. „Það er alltaf varhugavert þegar veðrið er eins og það er búið að vera. Það hafa verið austanáttir og mikill vindur og mikið að hlaðast inn af nýjum snjó og þá er alltaf hætta á snjóflóðum. Við erum þeim kostum búnir að við höfum aðgengi að toppunum á fjöllunum. Ef við metum hættu þá getum við farið með troðarana upp og ýtt niður hengjum. Það er ekki hægt allsstaðar,“ segir Magnús.
Hann segir að um leið og metin er hætta á flóði sé brugðist við. „Við erum með virkt snjóflóðaeftirlit og nokkrir hérna eru með viðurkennda gráðu við þess háttar eftirlit. Ef við metum einhverja hættu, oft eftir svona veður, gerum við það sem við getum til að hefla flóðið og ef það tekst ekki eru lyfturnar ekki opnar,“ segir Magnús sem býst við því að opið verði á skíðasvæðinu um helgina.