Þórey skipuð formaður Ferðamálaráðs

Þórey Vilhjálmsdóttir
Þórey Vilhjálmsdóttir

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað nýtt ferðamálaráð til fjögurra ára. 

Formaður ráðsins er Þórey Vilhjálmsdóttir og varaformaður Páll Marvin Jónsson. Þau eru skipuð án tilnefningar, segir í tilkynningu á vef ráðuneyisins. 

Þórey er fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. „Hún hefur áralanga reynslu af fyrirtækjarekstri, stjórnun og stefnumótun. Þórey er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á alþjóðaviðskipti og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þá stundaði hún auk þess nám við markaðs- og útflutningsfræði við Endurmenntunardeild Háskóla Íslands. 

Páll Marvin er formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja og framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja,“ segir í tilkynningu frá iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Aðrir í ferðamálaráði eru: Halldór Benjamín Þorbergsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir og Þórir Garðarsson, tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar. Aldís Hafsteinsdóttir og Hjálmar Sveinsson, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ásbjörn Björgvinsson og Díana Mjöll Sveinsdóttir, tilnefnd af Ferðamálasamtökum Íslands og Jón Ásbergsson, tilnefndur af Íslandsstofu.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert