Á tíunda tímanum í kvöld kviknaði í jeppa sem stóð við blokkina að Hnjúkabyggð 27 á Blönduósi.
Jeppinn er gjörónýtur en slökkviliði tókst að fjarlægja jeppann frá blokkinni áður en eldur barst í hana og engin slys urðu á fólki.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var ekki mikil hætta á ferðum en ákveðið var að draga jeppann frá blokkinni til öryggis. Eldsupptök eru ókunn.