Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur innkallað Energy For You Nanoclustered Water og Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water og bendir þeim sem eiga umræddar vörur að neyta þeirra ekki, farga þeim eða skila til þeirrar verslunar þar sem varan var keypt.
Komið hefur í ljós að vörurnar eru framleiddar af fyrirtæki án starfsleyfis og við aðstæður sem samræmast ekki lögum um matvæli nr. 93/1995 og reglugerðum settum með stoð í þeim. Þetta gerir það að verkum að ekki er hægt að fullyrða að vörurnar séu öruggar til neyslu.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Vörunni hefur verið dreift með tveimur mismunandi merkimiðum; Energy For You Nanoclustered Watereða Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water.
Framleiðandi: Energy for you ehf. (þessar upplýsingar vantar á vörurnar).
Framleiðsluland: Ísland.
Dreifing: Samkvæmt upplýsingum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur fengið hafa þessar vörur verið seldar í Heilsutorgi Blómavals og Lyfsalanum Glæsibæ. Einnig hafa borist upplýsingar um að vörunum hafi verið dreift í beinni sölu til einstaklinga en það hefur ekki verið staðfest af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.