Óveður undir Hafnarfjalli

Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og Sandskeiði en hálkublettir í Þrengslum og hálka á Lyngdalsheiði. Á Suðurlandi er víða nokkur hálka eða hálkublettir.

Á Vesturlandi er mikið autt á láglendi eða aðeins með hálkublettum en hálka er hins vegar á flestum fjallvegum. Óveður er undir Hafnarfjalli. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku.

Hálka eða þæfingsfærð er á flestum leiðum á Vestfjörðum en ófært á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Gemlufallsheiði.

Á Norðurlandi eru hálkublettir eða snjóþekja, þó er þæfingsfærð á Hólasandi,  Brekknaheiði og á Möðrudalsöræfum. Hálka og skafrenningur er á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði.

Á Austurlandi er víðast nokkur hálka eða snjóþekja. Snjóþekja er á Fagradal en hálka og skafrenningur á Oddsskarði og hálka og éljagangur á Fjarðarheiði.

Með suðausturströndinni er að mestu greiðfært frá Hvalnesi að Öræfum en annars hálka eða hálkublettir og sumstaðar éljagangur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert