Komst ekki vestur vegna veðurs

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Ég kem hér til að lýsa yfir áhyggjum af stöðu barnshafandi kvenna á Vestfjörðum, Ísafirði, en okkur berast fregnir af því að sú ljósmóðir sem sinnt hefur ómskoðun fyrir barnshafandi konur hefur sagt upp störfum sínum, hefur reyndar ekki komist vestur mikið undanfarið vegna veðurs, og því hefur þessi þjónusta verið í uppnámi og verður um ófyrirséðan tíma eða í að minnsta kosti ár til eitt og hálft ár því að langan tíma tekur að þjálfa ljósmæðurnar á staðnum upp í þessi verkefni vilji þær taka þau að sér.“

Þetta kom fram í máli Sigríðarb Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþngi í dag í umræðum um störf þingsins. Lagði hún áherslu á að þjónusta við barnshafandi konur væri grunnþjónusta. Draga hafi þurft úr fjölda þeirra staða þar sem hægt hafi verið að fæða af öryggisástæðum vegna þess að einfaldlega væru ekki nógu margir búsettir þar til þess að hægt væri að hafa þar þjálfað starfsfólk vegna barnsfæðinga. Hins vegar væri algerlega ólíðandi að ekki væru til ómskoðunartæki á staðnum og þess í stað þyrfti að senda konur með flugi landshluta á milli til þess að þær gætu farið í sónar. Boðaði hún skriflega fyrirspurn til heilbrigðisráðherra vegna málsins.

„Mér skilst að það sé þannig í dag að það gangi á annan kvóta, styrkirnir til að fara í þessa ómskoðun, og það er náttúrlega algjörlega óviðunandi. Það þarf að fara yfir þessi mál, enda er þetta grundvallaröryggismál fyrir íbúa landsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert