Sækja ferðamann á Vatnajökul

Vatnajökull
Vatnajökull mbl.is/Rax

Björgunarfélag Hornafjarðar er nú á leið inn á Vatnajökul til að sækja erlendan ferðamann sem óskaði aðstoðar í dag. Hann er ferð með tveimur félögum sínum en treystir sér ekki til að halda ferðalaginu áfram.

Mennirnir hugðust þvera jökulinn frá Lambatungujökli að Grímsvötnum og eru á þriðju dagleiðinni. Þeir eru nú staddir austarlega á jöklinum. 

Veðurspáin fyrir svæðið er mjög slæm, en veður fer að versna upp úr klukkan átta í kvöld. Björgunarmenn ætla að gera ferðalöngunum tveimur er hyggjast halda ferðinni áfram grein fyrir útlitinu og reyna að fá þá til að koma niður af jöklinum með björgunarsveitarmönnunum.

Nú eru vélsleðamenn Björgunarfélagsins á Höfn komnir um 15 km inn á jökulinn og ættu að verða komnir að mönnunum um klukkan 18:00 gangi ferðin vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert