Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um þjófnað í verslun Nettó í Mjódd. Þegar lögregla kom á staðinn neitaði hann að segja til nafns og gaf einnig upp ranga kennitölu.
Að lokum var hann vistaður í fangageymslu lögreglu og verður yfirheyrður síðar í dag vegna málsins.
Um hálftvö í nótt var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna en hann var látinn laus að lokinni blóðtöku.