Hálka á höfuðborgarsvæðinu

Það borgar sig að fara varlega í hálkunni
Það borgar sig að fara varlega í hálkunni mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Það er hálka á höfuðborgarsvæðinu og verið að salta götur og sanda stíga. Fólk er beðið að fara varlega í morgunumferðinni vegna þessa.

Hálka er á Hellisheiði og Sandskeiði. Mikið er um hálku víða á Suðurlandi og uppsveitum Árnessýslu, þó eitthvað um hálkubletti.

Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir og skafrenningur á fjallvegum. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er djúpið í flughálku. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði. Þungfært um Þröskulda eins og er. Ófært er á Hálfdán og Kleifaheiði en þæfingsfærð á Mikladal. Lokað um Raknadalshlíð. Verið er að kanna aðrar leiðir.

Á Norðurlandi er víða hálka og snjóþekja. Flughálka er frá Hrútafirðinum og uppá Þverárfjall og frá Hofsósi að Fljótum, Héðinsfirði og á Grenivíkurvegi. Mokstur er í gangi á flestum leiðum.

Ófært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Biskupshálsi, Hófaskarði, Jökuldal, Hólasandi og Vatnsskarði eystra. Flughálka er á Oddsskarði. Þungfært og skafrenningur á Vopnafjarðarheiði.

Hálka, snjóþekja eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi. Greiðfært er frá Breiðdalsvík með suðausturströndinni vestur undir Öræfi en þar tekur við hálka og hálkublettir, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Veðurspá fyrir næsta sólarhring:

Suðvestan 15-23 m/s og éljagangur, hvassast úti við sjóinn, en úrkomulítið NA-lands. Dregur heldur úr vindi og éljum í kvöld. Hiti kringum frostmark. Gengur í suðaustan 18-23 með slyddu eða rigningu á morgun, en snjókomu fyrir norðan og hlýnar heldur.

Sjá veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert