Innanlandsflug að hefjast á ný

Fyrstu flugvélarnar í innanlandsflugi eru á leiðinni í loftið en allt innanlandsflug hefur legið niðri í morgun vegna veðurs.

Flugfélag Íslands er með flug til Akureyrar nú skömmu fyrir hádegi og eins verður flogið á Egilsstaði klukkan 12:30. Flug til Ísafjarðar er enn í athugun.

Hjá flugfélaginu Erni verður flogið í hádeginu til Vestmannaeyja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert