Ísland ekki lengur umsóknarríki að ESB

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hún hafi ekki í hyggju að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik. 

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að ríkisstjórn Íslands hafi á fundi sínum á þriðjudaginn samþykkt að hún hafi ekki í hyggju að taka upp aðildarviðræður við ESB á nýjan leik. Ríkisstjórnin líti því svo á að Ísland sé ekki lengur í hópi umsóknarríkja og fer þess á leit við ESB að sambandið taki hér eftir mið af því. Jafnframt er tekið fram að litið sé svo á að þessi nýja stefna yfirtaki þær skuldbindingar sem gefnar voru í aðildarviðræðum fyrri ríkisstjórnar.

Í samtali sínu við Rinkevics lagði Gunnar Bragi áherslu á áframhaldandi sterk tengsl og samstarf Íslands og ESB, meðal annars á grundvelli EES-samningsins. Lýsti ráðherrann eindregnum vilja sínum til þess að efla samstarf Íslands og ESB enn frekar. 

Rinkevics, sem er jafnframt utanríkisráðherra Lettlands, sagðist virða þessa niðurstöðu og tekur undir áframhaldandi mikilvægi góðs náins samstarfs ESB og Íslands. 

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um sendingu bréfs til formennskuríkis ESB kom í framhaldi af umfangsmiklum samskiptum íslenskra stjórnvalda og ESB undanfarnar vikur. 

Framkvæmdastjórn ESB hefur þegar verið kynnt  efni bréfsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert