Jafnvægi komið á útköll

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Mikið hefur verið um útköll á svæði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag, þar á meðal gegnum 112. Símtölum var ekki annað á tímabili og var fólk beðið um að hringja í númerið 570-2080, ef neyðarástand skapaðist ekki væri svarað í 112.

 Samkvæmt fréttatilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðisins voru flest útköllin tengd ofsaveðrinu sem fór yfir höfuðborgarsvæðið í morgun en nú er komið jafnvægi á þau útköll sem berast. 

„Mikil og góð samvinna hefur verið með öðrum útkallsaðilum og viljum við þakka mjög gott samstarf við björgunarsveitir, slökkvilið , Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og sveitarfélög, svo einhverjir séu nefndir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert