Miklubraut lokað við Kringluna

Þakplötur á flugi við Miklubraut nú í morgun.
Þakplötur á flugi við Miklubraut nú í morgun.

Lögreglan hefur lokað Miklubraut á milli Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar vegna fjúkandi þakplatna. Miklar annir eru hjá lögreglu sem sinnir verkefnum vegna fjúkandi hluta og vatnavaxta. Hefur aukalið verið kallað út til að sinna þeim fjölda verkefna sem henni berst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert