Lokunarsvæðið við Holuhraun minnkað

Lögreglan í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð mun vera með viðveru á …
Lögreglan í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð mun vera með viðveru á svæðinu til þess að gæta öryggis og vinna náið með vakt Veðurstofunnar.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, lögreglustjórinn á Austurlandi, lögreglustjórinn á Suðurlandi og Ríkislögreglustjóri hafa ákveðið að gera breytingar á lokunarsvæðinu umhverfis Holuhraun með vísan í 23. gr. laga nr. 82/2008 um almannavarnir.

Nýja lokunarsvæðið nær 20 metra út frá norður jaðri nýja hraunsins, að Dyngjujökli í suðri, að farvegi Jökulsár á Fjöllum í austri og að vestustu kvíslum Jökulsár á Fjöllum í vestri. Meðfylgjandi kort sýnir mörk lokunarsvæðisins, að því er segir í tilkynningu.

Ákvörðunin er tekin út frá hættumati Veðurstofu Íslands þar sem fjallað er um hættur á svæðinu. Þar leggur Veðurstofa Íslands einnig til að farið verði í mótvægisaðgerðir til að auka öryggi almennings í nágrenni hins nýja lokunarsvæðis.

Lögreglan í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð mun vera með viðveru á svæðinu til þess að gæta öryggis og vinna náið með vakt Veðurstofunnar. Þá er stefnt að því að koma upp frekari mælibúnaði sem tengdur er vöktunarkerfi Veðurstofunnar og auka þannig vöktun á svæðinu svo gefa megi út viðvaranir verði talin ástæða til.

Vatnajökulsþjóðgarður mun hnitsetja og merkja áhugaverða útsýnisstaði fyrir ferðamenn, þar sem aðgengi er auðvelt og fljótlegt að rýma svæðið ef ástæða verður til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert