Mótmæla framkomu stjórnarinnar

Hópur fólks mótmælir nú framkomu ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum á Austurvelli. Um 1.700 manns höfðu boðað komu sína á Facebook-síðu mótmælanna. Ríkisstjórnin er sögð sýna Alþingi og þjóðinni óvirðingu og dónaskap.

Þetta er í þriðja sinn á síðustu fjórum dögum sem fólk kemur saman til að mótmæla ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að slíta endanlega aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert