„Ekki óeðlilegt að ráðherra taki afstöðu“

Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég tel að utanríkisráðherra hafi alveg nákvæmlega sama rétt til að skrifa bréf til ESB og formenn stjórnarflokkanna sem skrifuðu bréf í kjölfarið, og ég tel ekki óeðlilegt að utanríkisráðherra taki afstöðu í þessu máli,“ sagði Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag.

Þetta sagði hún í kjölfar fyrirspurnar Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, sem spurði hvort Valgerður teldi bréfaskriftir af sama tagi og utanríkisráðherra sendi Evrópusambandinu vera í samræmi við góða stjórnarhætti og hvort ekki hefði verið eðlilegri farvegur fyrir málið að leita samráðs við utanríkismálanefnd Alþingis. 

Á síðasta ári var lögð fram þingsályktunartillaga sem fór í málþóf hér í þinginu og kom ekki út úr utanríkismálanefnd. Það er algjörlega ljóst að ríkisstjórnin hefur ekki í hyggju að halda áfram því starfi sem var unnið á síðasta kjörtímabili,“ sagði Valgerður, en bætti því við að sem kjósandi á síðasta kjörtímabili harmaði hún það að hafa ekki verið spurð að því hvort við ættum að ganga þá vegferð að sækja um aðild að Evrópusambandinu. „Ég hef alltaf verið á móti því að við gengjum í Evrópusambandið og mér þykir það afar leitt að hafa ekki fengið að segja til um það.

Sigríður Ingibjörg spurði einnig hvort Valgerður óttaðist ekki að stjórnarhættir ríkisstjórnarinnar í þessu máli „sem einkennast af leynd, óljósum skilaboðum, túlkun eftir hentugleika og skætingi“ ýti undir ráðherraræði á kostnað sjálfstæðis þingsins.

„Ég hef ekki áhyggjur af því að hér séu óeðlilegir stjórnarhættir frekar en á fyrri kjörtímabilum. Sú ríkisstjórn sem er við völd hverju sinni hefur umboð frá kjósendum til þess að stjórna með þingstyrk sínum og ég býst við að það sé gert núna alveg nákvæmlega eins og á síðasta kjörtímabili,“ sagði Valgerður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert