Tilkynningum um holur rignir inn

Á sama stað í miðbænum og starfsmenn borgarinnar voru að …
Á sama stað í miðbænum og starfsmenn borgarinnar voru að fylla í holur sl. mánudag, og birt var mynd af á forsíðu Morgunblaðsins, voru starfsmenn Fagverks mættir í gær til frekari viðgerða á Tryggvagötu. mbl.is/Golli

Ábendingum um holur í gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins, og tjón af þeirra völdum, rignir inn til sveitarfélaganna, Vegagerðarinnar og tryggingarfélaga.

Skipta þessar tilkynningar orðið hundruðum og eru frá áramótum orðnar langtum fleiri en á öllu síðasta ári.

Rekstrarstjóri á einni hverfastöð borgarinnar hefur ekki séð verra ástand gatna á sínum 43 ára starfsferli, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert