Þingmál deyi ekki við lok þings

Birgitta Jónsdóttir.
Birgitta Jónsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Níu þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um þingsköp Alþingis þess efnis að þingmál sem ekki tekst að ljúka afgreiðslu á fyrir lok löggjafarþings skuli taka upp á næsta löggjafarþingi nema flutningsmaður dragi það til baka. Orðrétt segir í frumvarpinu:

„Þingmál sem ekki hafa hlotið lokaafgreiðslu við lok löggjafarþings skal taka upp á næsta löggjafarþingi nema flutningsmaður dragi málið til baka. Þingmál sem ekki hafa hlotið lokaafgreiðslu við lok kjörtímabils þingsins falla niður. Fastanefndir þingsins skulu leggja fram nefndarálit í málum sem til þeirra hefur verið vísað fyrir lok hvers löggjafarþings. Fari ekki fram umræða um nefndarálit á yfirstandandi löggjafarþingi skal taka málið upp aftur á næsta löggjafarþingi.“

Fram kemur í greinargerð að það sé mat flutningsmanna að breytingar þær sem frumvarpið boði muni styrkja störf og lýðræðislega virkni þingsins. Fyrsti flutningsmaður er Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert