Kviknaði í gasgrilli

Nú er grilltíminn að hefjast og gott er að yfirfara …
Nú er grilltíminn að hefjast og gott er að yfirfara grillið eftir veturinn. mbl.is/Rax

Eldur kom upp í útigrilli á svölum íbúðar í miðborginni í gærkvöldi. Eldurinn læstist í gaskútinn og hefði getað farið verr en íbúum tókst að slökkva eldinn áður en í óefni fór.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurfti að reykræsta íbúðina þar sem eldurinn náði að læsa sig í gluggakarm og eins kom sprunga í rúðuna og reykurinn leitaði inn í íbúðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert